Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Birting laga og stjórnvaldaerinda
Undirritunardagur
27. desember 2017
Útgáfudagur
12. janúar 2018
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1300/2017
27. desember 2017
GJALDSKRÁ
fyrir Lögbirtingablað.
1. gr.
Samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15 10. mars 2005, eru gjöld fyrir auglýsingar sem birtast í Lögbirtingablaði hér með ákveðin þannig:
-
Fyrir auglýsingar í eftirtöldum flokkum sem sendar eru inn í gegnum almennt auglýsingaform í auglýsingakerfi Lögbirtingablaðsins greiðast 4 kr. fyrir stafabil, hvert slag:
Auglýsing/tilkynning varðandi fjármálastarfsemi Kaupmáli Auglýsing/tilkynning frá ráðuneyti Laus störf, stöður, embætti o.fl. Áskorun Mat á umhverfisáhrifum Dómsbirting Nauðasamningar Embætti, sýslanir, leyfi o.fl. Skipulagsauglýsing Fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala Starfsleyfi Félagsslit Stefna Framhald uppboðs Svipting fjárræðis Fyrirkall Umferðarauglýsing Greiðsluáskorun Vátryggingafélagaskrá/ Happdrætti vátryggingamiðlaraskrá Húsbréf Veðhafafundur Innkallanir (aðrar en þrotabúa og dánarbúa) Ýmsar auglýsingar og tilkynningar
-
Fyrir eftirtaldar auglýsingar greiðist sem hér segir:
Aukatilkynning hlutafélagaskrár 1.500 kr. fyrir hverja tilkynningu Firmaskráning 1.500 kr. fyrir auglýsingu Hlutafélagaskráning 1.500 kr. fyrir auglýsingu Innköllun dánarbús 1.500 kr. fyrir hvert bú Innköllun þrotabús 1.500 kr. fyrir hvert bú Nauðungarsala 1.500 kr. fyrir hverja eign Skiptafundur dánarbús 1.500 kr. fyrir auglýsingu Skiptafundur þrotabús 1.500 kr. fyrir auglýsingu Skiptalok dánarbús 1.500 kr. fyrir auglýsingu Skiptalok þrotabús 1.500 kr. fyrir auglýsingu
-
Annað:
Einungis er greitt fyrir 1. birtingu auglýsinga sem skylt er skv. lögum að birta oftar.
Heimilt er að innheimta allt að tvöfalt verð auglýsingar vegna vinnu við innslátt eða uppsetningu.
Heimilt er að innheimta álag þótt auglýsing hafi verið afturkölluð.
Gjald vegna fylgiskjals sem birtist með auglýsingu er kr. 5.000.
2. gr.
Samkvæmt 2. mgr. 7. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, er gjald fyrir áskrift að Lögbirtingablaði sem hér segir:
- Áskrift að prentaðri útgáfu Lögbirtingablaðs er kr. 82.000 fyrir árið.
- Verð einstakra blaða er kr. 802.
- Verð fyrir netáskrift er kr. 2.300 fyrir árið.
3. gr.
Gjaldskrá þessi, sem kemur í stað gjaldskrár nr. 1028/2015, öðlast gildi 15. janúar 2018.
Dómsmálaráðuneytinu, 27. desember 2017.
Sigríður Á. Andersen.
Bryndís Helgadóttir.
B deild - Útgáfud.: 12. janúar 2018