Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Orkuveita Reykjavíkur

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Akranes

Undirritunardagur

11. desember 2024

Útgáfudagur

27. desember 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1630/2024

11. desember 2024

GJALDSKRÁ

fyrir fráveitu á veitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur – vatns- og fráveitu, Akraneskaupstaður.

Félagsfundur Orkuveitu Reykjavíkur – vatns- og fráveitu sf. hefur samþykkt eftirfarandi gjaldskrá fyrir fráveitu og birtir hana í umboði bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar:

1. gr. Álögð fráveitugjöld.

Sveitarfélag Fast gjald kr./matseiningu Breytilegt gjald kr./fermetra
Veitusvæði II - Akranes 13.464 519,68

Fyrir fasteignir í landi Krosslands í Hvalfjarðarsveit gildir verð skv. veitusvæði II – Akranes.

Heimilt er að innheimta fráveitugjald af öllum fasteignum þar sem tenging er fyrir hendi við mörk fasteignar. Fráveitugjald samanstendur af fastagjaldi á hverja matseiningu og fermetragjaldi eftir stærð samkvæmt fasteignamati. Heimilt er að reiknað sé af flatarmáli allra mannvirkja á fasteign.

Heimilt er Orkuveitu Reykjavíkur – vatns- og fráveitu að gjaldfella álagningu ársins verði greiðslufall á einum eða fleiri reikningum vegna álagningarinnar.

Heimilt er að innheimta sérstakt aukagjald ef frárennsli frá gjaldskyldum aðila er svo mengað að það leiði til sérstakra aðgerða fráveitunnar, svo sem sértækrar hreinsunar eða breytinga í kerfinu. Er þá innheimtur raunkostnaður sem hlýst af viðkomandi aðgerð.

2. gr. Tengigjöld.

Svæði Tengigjald¹ Grunnur
Ný hverfi, þar sem tengingar eru ekki til staðar inn á lóð 580.343 kr./lóð

¹ Verð miðast við tvöfalda 150 mm tengingu við lóðarmörk og fyrstu tengingu inn á lóð. Lóðarhafar greiða raunkostnað fyrir umframtengingar og stærri tengingar.

Fyrir stakar lóðir, þar sem tenging er ekki til staðar t.d. vegna þéttingar byggðar, greiðir lóðarhafi raunkostnað af nýrri tengingu við virkt fráveitukerfi.

Hafi lóðarhafi eða verktaki á hans vegum lagt tengingu undir eftirliti Orkuveitunnar greiðir hann fyrir tengistút við safnkerfi kr. 111.245.

Tengigjöldin miðast við byggingarvísitölu í nóvember 2024 og uppfærast 1. hvers mánaðar miðað við þá vísitölu.

3. gr.

Gjaldskrá þessi sem er sett í samræmi við lög um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009 og reglugerð um fráveitur sveitarfélaga nr. 982/2010 öðlast gildi 1. janúar 2025. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1573/2023.

Reykjavík, 11. desember 2024.

F.h. Orkuveitu Reykjavíkur – vatns- og fráveitu sf.,

Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna.

B deild - Útgáfud.: 27. desember 2024

Tengd mál