Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
12. febrúar 2020
Útgáfudagur
2. mars 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 168/2020
12. febrúar 2020
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Á eftir 1. mgr. 28. gr. reglnanna bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:
Rektor er heimilt að ákveða, að fenginni rökstuddri tillögu viðkomandi deildarforseta og forseta fræðasviðs, að starfsheiti vísindamanns, fræðimanns eða sérfræðings verði rannsóknaprófessor, rannsóknadósent eða rannsóknalektor.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 52. gr. reglnanna:
- Í stað dagsetningarinnar „20. ágúst“ í 2. málslið 1. mgr. kemur: 15. ágúst.
- Í stað dagsetningarinnar „4. janúar“ í 1. málslið 2. mgr. kemur: 3. janúar.
3. gr.
Í upptalningu lærdómstitla undir tölulið 2.1 í 1. mgr. 55. gr. reglnanna, á eftir orðunum „Master of Education“, bætast við orðin Master of Teaching og á eftir skammstöfuninni „M.Ed.“ í sama tölulið bætist við skammstöfunin MT.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 57. gr. reglnanna:
-
Á
eftir
1.
mgr.
bætist
við
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Deildum er heimilt, að höfðu samráði við prófstjóra og með samþykki stjórnar viðkomandi fræðasviðs, að halda sjúkra- og endurtökupróf vegna desemberprófa á fjögurra til fimm daga tímabili í fyrstu og/eða annarri viku janúar ár hvert. Miðað skal við að fyrsti prófdagur sé eins skjótt og hægt er eftir lok jólaleyfis nemenda (19. desember til 3. janúar). Jafnframt er heimilt að halda sjúkra- og endurtökupróf vegna vormisseris á fjögurra til fimm daga tímabili í byrjun júní, samkvæmt nánari ákvörðun prófstjóra. - Orðin „samtímis sjúkraprófum vormisseris“ í 2. málslið núverandi 2. mgr. falla brott.
5. gr.
Á eftir orðunum „á próftímabili í desember“ í 5. málslið 1. mgr. 60. gr. reglnanna bætast við orðin: nema í þeim tilvikum þar sem boðið er upp á endurtökupróf í janúar.
6. gr.
Á eftir 21. mgr. 84. gr. reglnanna bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:
Diplómanám í þjóðfræði er sjálfstætt 30 eininga nám að loknu BA-prófi eða sambærilegu háskólaprófi. Nám þetta er hægt að fá metið inn í meistaranám í þjóðfræði.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 117. gr. reglnanna:
- Á eftir staflið a í upptalningu kennslugreina í 1. mgr. bætist við nýr stafliður, svohljóðandi: Til MT-prófs: Kennsla erlendra tungumála; kennsla íslensku; kennsla list- og verkgreina; kennsla náttúrugreina; kennsla samfélagsgreina; kennsla stærðfræði; kennsla upplýsingatækni og miðlunar; menntun framhaldsskólakennara; menntavísindi.
-
Á
eftir
7.
mgr.
bætist
við
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Til MT-prófs er krafist 120 eininga náms að loknu B.Ed.-prófi frá deildinni, eða bakkalárprófi í skyldum greinum. Nám til MT-prófs er á stigi 2.1 samkvæmt viðmiðum um æðri menntun og prófgráður. Það telst því viðbótarpróf á meistarastigi og veitir ekki aðgang að doktorsnámi. - Í stað orðanna „BA- eða BS-prófi“ í 1. málslið núverandi 8. mgr. kemur: bakkalárprófi.
- Í stað orðanna „60 eininga framhaldsnám“ í 1. málslið núverandi 13. mgr. kemur: 30 eininga eða 60 eininga nám á meistarastigi.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 119. gr. reglnanna:
- Á eftir staflið c í upptalningu kennslugreina í 1. mgr. bætist við nýr stafliður, svohljóðandi: Til MT-prófs: Heilsuefling og heimilisfræði; íþrótta- og heilsufræði.
- 8. mgr. fellur brott.
-
Á
eftir
núverandi
11.
mgr.
bætist
við
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Til MT-prófs er krafist 120 eininga náms að loknu B.Ed.-prófi frá deildinni, eða bakkalárprófi í skyldum greinum. Nám til MT-prófs er á stigi 2.1 samkvæmt viðmiðum um æðri menntun og prófgráður. Það telst því viðbótarpróf á meistarastigi og veitir ekki aðgang að doktorsnámi. - Í stað orðanna „BA-, B.Ed.- eða BS-prófi í námsleiðum deildarinnar eða skyldum greinum“ í 1. málslið núverandi 12. mgr. kemur: bakkalárprófi í námsleiðum deildarinnar eða í skyldum greinum.
- Í stað orðanna „BA-, B.Ed.- eða BS-prófi“ í 1. málslið núverandi 13. mgr. kemur: bakkalárprófi.
-
Á
eftir
núverandi
15.
mgr.
bætist
við
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Framhaldsnám til meistara- og doktorsprófs er skipulagt samkvæmt þessum reglum og nánari reglum sem deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda setur og háskólaráð staðfestir, sbr. 66.-69. gr. þessara reglna. Lýsing á náminu skal koma fram í kennsluskrá. -
Núverandi
16.
mgr.
breytist
og
orðast
svo:
Diplómanám í heilbrigði og heilsuuppeldi er sjálfstætt 30 eininga nám á meistarastigi. -
Núverandi
17.
mgr.
breytist
og
orðast
svo:
Diplómanám í hagnýtri heilsueflingu er sjálfstætt 60 eininga nám á meistarastigi. -
Núverandi
18.
mgr.
breytist
og
orðast
svo:
Diplómanám í tómstunda- og félagsmálafræði er sjálfstætt 30 eininga eða 60 eininga nám á meistarastigi. -
Á
eftir
núverandi
18.
mgr.
bætist
við
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Nám til viðbótardiplómu er hægt að fá metið inn í meistaranám, að uppfylltum inntökuskilyrðum.
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 121. gr. reglnanna:
- Á eftir staflið a í upptalningu kennslugreina í 1. mgr. bætist við nýr stafliður, svohljóðandi: Til MT-prófs: Leikskólakennarafræði; menntunarfræði leikskóla; grunnskólakennsla yngri barna; kennslufræði yngri barna í grunnskóla; mál og læsi; menntun án aðgreiningar.
-
Á
eftir
8.
mgr.
bætist
við
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Til MT-prófs er krafist 120 eininga náms að loknu B.Ed.-prófi frá deildinni, eða bakkalárprófi í skyldum greinum. Nám til MT-prófs er á stigi 2.1 samkvæmt viðmiðum um æðri menntun og prófgráður. Það telst því viðbótarpróf á meistarastigi og veitir ekki aðgang að doktorsnámi. - Í stað orðanna „BA- eða BS-prófi“ í 1. málslið núverandi 9. mgr. kemur: bakkalárprófi.
- Í stað orðsins „meistaranámi“ í 1. málslið núverandi 11. mgr. kemur: grunn- og meistaranámi.
- Í stað orðanna „30 eininga framhaldsnám“ í 1. málslið núverandi 14. mgr. kemur: 30 eininga nám á meistarastigi.
- Í stað orðanna „framhaldsnám til 30 eða 60 eininga“ í 1. málslið núverandi 15. mgr. kemur: 30 eininga eða 60 eininga nám á meistarastigi.
- Í stað orðanna „60 eininga framhaldsnám“ í 1. málslið núverandi 16. mgr. kemur: 60 eininga nám á meistarastigi.
10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 122. gr. reglnanna:
- Í stað orðanna „BA-, B.Ed.- eða BS-prófi“ í 1. málslið 8. mgr. og 1. málslið 9. mgr. kemur: bakkalárprófi.
- Í stað orðsins „meistaranámi“ í 1. málslið 10. mgr. kemur: grunn- og meistaranámi.
-
Á
eftir
10.
mgr.
bætast
við
tvær
nýjar
málsgreinar,
svohljóðandi:
Til doktorsprófs í menntavísindum, Ed.D., er krafist minnst 180 eininga að loknu meistaraprófi og til doktorsprófs í menntavísindum, Ph.D., er krafist 180–240 eininga að loknu meistaraprófi.
Framhaldsnám til meistara- og doktorsprófs er skipulagt samkvæmt þessum reglum og nánari reglum sem deild menntunar og margbreytileika setur og háskólaráð staðfestir, sbr. 66.–69. gr. þessara reglna. Lýsing á náminu skal koma fram í kennsluskrá. - Í stað orðanna „60 eininga nám“ í 1. málslið núverandi 12. mgr. kemur: 30 eininga eða 60 eininga nám.
-
Á
eftir
núverandi
13.
mgr.
bætist
við
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Nám til viðbótardiplómu er hægt að fá metið inn í meistaranám, að uppfylltum inntökuskilyrðum. - Núverandi 14. og 15. mgr. falla brott.
11. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 12. febrúar 2020.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 2. mars 2020