Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið (2012-2022)

Málaflokkur

Árnessýsla, Húnavatnssýslur, Borgarbyggð, Náttúrurannsóknir - náttúruvernd

Undirritunardagur

16. september 2021

Útgáfudagur

1. október 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1105/2021

16. september 2021

AUGLÝSING

um verndarsvæði á Suðurlandi – vatnasvið Jökulfalls og Hvítár í Árnessýslu í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlunar.

1. gr. Um friðlýsinguna.

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið, á grundvelli verndarflokks þingsályktunar nr. 13/141 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, frá 14. janúar 2013, að friðlýsa vatnasvið Jökulfalls og Hvítár í Árnessýslu: 32 Gýgjarfossvirkjun og 33 Bláfellsvirkjun í Bláskógabyggð, Borgarbyggð, Hrunamannahreppi, Húnavatnshreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi gagnvart orkuvinnslu á grundvelli 53. gr. laga nr. 60/2013, um náttúruvernd.

Verndarsvæðið er 1.544 km² að stærð.

2. gr. Markmið friðlýsingarinnar.

Tilgangur og markmið friðlýsingarinnar er að vernda vatnasvið Jökulfalls og Hvítár í Árnessýslu: 32 Gýgjarfossvirkjun og 33 Bláfellsvirkjun gegn orkuvinnslu, sbr. 1. gr.

3. gr. Mörk verndarsvæðisins.

Mörk verndarsvæðisins eru sýnd á korti sem birt er með auglýsingu þessari í viðauka I og afmarkast af þeim hnitum sem gefin eru upp í ISN93 hnitakerfi í viðauka II.

Friðlýsingin nær til alls vatnasviðs Jökulfalls og Hvítár í Árnessýslu ofan stíflumannvirkja áður fyrirhugaðrar Bláfellsvirkjunar og meginfarvegs Hvítár þar fyrir neðan, 500 m út frá miðlínu til beggja handa, að efstu mörkum fyrirhugaðs lóns Búðartunguvirkjunar eins og hún er kynnt í 3. áfanga rammaáætlunar.

Þar sem vatnasvið Gýgjarfossvirkjunar er hluti af vatnasviði Bláfellsvirkjunar er friðlýst eitt samfellt svæði sem nær til vatnasviða beggja þessara virkjunarkosta.

4. gr. Mannvirkjagerð og orkurannsóknir.

Orkuvinnsla fallvatna með uppsett rafafl 10 MW eða meira innan marka svæðisins er óheimil. Ekki er heimilt að veita leyfi tengd orkurannsóknum eða orkuvinnslu á verndarsvæðinu vegna virkjunar fallvatna með uppsett rafafl 10 MW eða meira. Að fengnu samþykki Umhverfisstofnunar og að undangenginni umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands er heimilt að stunda yfirborðsrannsóknir á verndarsvæðinu.

5. gr. Viðurlög.

Brot gegn friðlýsingu þessari varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, sbr. 90. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013.

6. gr. Gildistaka.

Friðlýsingin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 16. september 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

VIÐAUKAR
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 1. október 2021

Tengd mál