Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innanríkisráðuneytið (2011-2017)
Málaflokkur
Kirkjumál
Undirritunardagur
17. desember 2015
Útgáfudagur
21. desember 2015
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1146/2015
17. desember 2015
AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá um greiðslur fyrir aukaverk presta þjóðkirkjunnar, nr. 729/2014.
1. gr.
3. mgr. 1. gr. gjaldskrárinnar orðast svo:
Þóknun fyrir aukaverk presta miðast við einingar sem kjararáð ákvarðar þeim sem undir það heyra. Hver eining er 1% af launaflokki 136 í launatöflu kjararáðs nr. 502, nú 8.934 krónur. Verði breyting á launatöflu kjararáðs nr. 502, þannig að ný krónutala komi fyrir hverja einingu í stað þeirrar sem nú er, skal ráðherra innan mánaðar með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda breyta gjaldskrá þessari til samræmis. Sama gildir ef kjararáð breytir viðmiði hvað varðar launaflokk eða prósentutölu í launatöflu sinni.
2. gr.
2. gr. gjaldskrárinnar orðast svo:
Þóknun fyrir hvert aukaverk prests er metin sem hlutfall af einingu kjararáðs skv. 3. mgr. 1. gr. gjaldskrárinnar og ennfremur tilgreind í krónutölu sem hér segir:
| 1. | Skírn | 0,7 ein. kjararáðs eða | 6.254 kr. | |
| 2. | Ferming | 2,0 ein. kjararáðs eða | 17.868 kr. | |
| 3. | Hjónavígsla | 1,3 ein. kjararáðs eða | 11.614 kr. | |
| 4. | Útför | 2,6 ein. kjararáðs eða | 23.229 kr. | |
| 5. | Kistulagning | 0,8 ein. kjararáðs eða | 7.147 kr. | |
| 6. | Athöfn við jarðsetningu duftkers eða kistu | 0,8 ein. kjararáðs eða | 7.147 kr. | |
| 7. | Embættisvottorð | 0,2 ein. kjararáðs eða | 1.787 kr. |
Sá sem beiðist skírnar greiðir ekki þóknun verði skírnin við guðsþjónustu.
Kirkjugarðsstjórn greiðir ekki þóknun fyrir jarðsetningu duftkers eða kistu ef athöfn er í beinu framhaldi af útför.
3. gr.
Breyting þessi á gjaldskrá nr. 729/2014, sem sett er samkvæmt lögum um embættiskostnað sóknarpresta og aukaverk þeirra nr. 36/1931, öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 17. desember 2015.
Ólöf Nordal.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
B deild - Útgáfud.: 21. desember 2015