Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Reykjavíkurborg
Málaflokkur
Skipulagsmál, Reykjavík
Undirritunardagur
31. mars 2026
Útgáfudagur
17. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 377/2026
31. mars 2026
AUGLÝSING
um breytingar á deiliskipulagi og hverfisskipulagi í Reykjavíkurborg.
Norðlingaholt – atvinnuhúsnæði A3-01 – Norðlingabraut 4-12 – USK25110243.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 24. febrúar 2026, breytingu á á skilmálum deiliskipulags Norðlingaholts fyrir atvinnuhúsnæði A3-01 á lóð nr. 4-12 við Norðlingabraut. Í breytingunni felst að gera skilmála fyrir húsagerðina A3-01 skýrari, bæði í texta og skýringarmyndum. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Norðlingaholt – tvíbýlishús T2 – Kólguvað, Krókavað, Lindarvað og Lækjarvað – USK25110242.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 24. febrúar 2026, breytingu á skilmálum deiliskipulags Norðlingaholts fyrir tvíbýlishús T2 á lóðunum við Kólguvað, Krókavað, Lindarvað og Lækjarvað. Í breytingunni felst að heimilt verði að stækka íbúðir á 2. hæð ofan á bílageymslu þar sem í dag eru svalir/útipallur annarrar hæðar. Heimilt verður að gera svalir á stækkunina sem snúa inn í garð. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Hálsahverfi – Járnháls 4 – USK25100409.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 17. mars 2026, breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 4 við Járnháls. Í breytingunni felst að heimilt verði að hækka tveggja hæða nýbyggingu um 1,5 m, úr 9 m í 10,5 m. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Breiðholt, hverfi 6.3, Efra-Breiðholt – Krummahólar 51 – USK26020015.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 17. mars 2026, breytingu á skilmálum hverfisskipulags Breiðholts, hverfi 6.3, Efra-Breiðholt, vegna lóðarinnar nr. 51 við Krummahóla. Í breytingunni felst aukið byggingarmagn á lóð fyrir viðbyggingu upp á 29 m². Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 5. mgr. 37. gr., sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Ártúnsholt, hverfi 7.1 – USK26030262.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 17. mars 2026, breytingu á hverfisskipulagi Ártúnsholts, hverfi 7.1. Í breytingunni felst að mörkum skipulagssvæðisins er breytt og sá hluti sem áður tilheyrði skipulaginu verður eftir breytingu hluti af deiliskipulagi Elliðaárdals. Afmörkun hverfisskipulagsins minnkar um nokkra metra til norðurs. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 5. mgr. 37. gr., sbr. 2. mgr. 43. gr. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 31. mars 2026.
Brynjar Þór Jónasson.
B deild — Útgáfudagur: 17. apríl 2026