Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
29. apríl 2016
Útgáfudagur
8. júní 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 504/2016
29. apríl 2016
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Zimbabwe nr. 744/2015.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Zimbabwe nr. 744/2015:
| 1.8 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1924 frá 26. október 2015 um breytingu á ákvörðun 2011/101 (SSUÖ) um þvingunaraðgerðir gegn Zimbabwe, fylgiskjal 1.8. | |
| 1.9 | Ákvörðun ráðsins 2016/220/SSUÖ frá 15. febrúar 2016 um breytingu á ákvörðun 2011/101/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Zimbabwe, fylgiskjal 1.9. | |
| 2.11 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1919 frá 26. október 2015 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 2.11. | |
| 2.12 | Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1921 frá 26. október 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 2.12. | |
| 2.13 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/214 frá 15. febrúar 2016 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 2.13. | |
| 2.14 | Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/218 frá 16. febrúar 2016 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 2.14. |
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 29. apríl 2016.
Lilja Alfreðsdóttir.
Stefán Haukur Jóhannesson.
Fylgiskjöl.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 8. júní 2016