Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjölmiðlanefnd

Málaflokkur

Fjölmiðlar

Undirritunardagur

3. desember 2025

Útgáfudagur

5. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1311/2025

3. desember 2025

STARFSREGLUR

úthlutunarnefndar um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla.

1. gr. Markmið og hlutverk.

Markmið úthlutunarnefndar er að úthluta fjárhagslegum rekstrarstuðningi til einkarekinna fjölmiðla í samræmi við X. kafla B laga um fjölmiðla nr. 38/2011, eins og þeim var breytt með lögum nr. 66/2025, til að styrkja lýðræðishlutverk fjölmiðla, efla fjölbreytni, fjölræði, gæði og aðgengi að fjölmiðlaefni.

Hlutverk nefndarinnar er að tryggja sanngjarna, gagnsæja og faglega úthlutun rekstrarstuðnings með áherslu á fjölbreytni í fjölmiðlaumfjöllun og stuðning við lýðræðislega umræðu.

2. gr. Skipan og skipulag nefndarinnar.

Ráðherra skipar þriggja manna úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Einn nefndarmaður skal skipaður samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar Íslands, einn samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins og einn samkvæmt tilnefningu Ríkisendurskoðunar og skal sá vera löggiltur endurskoðandi. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt.

Ráðherra skipar formann nefndarinnar úr hópi nefndarmanna og skal hann uppfylla starfsgengisskilyrði héraðsdómara.

Aðrir nefndarmenn og varamenn þeirra skulu hafa sérþekkingu á fjölmiðlamálum, reynslu og menntun sem nýtist á þessu sviði.

3. gr. Umsóknarferli og skilyrði.

Úthlutunarnefnd auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstuðning. Umsókn um rekstrarstuðning, ásamt fylgigögnum, skal berast úthlutunarnefnd samkvæmt umsóknarfresti ákveðnum í reglugerð.

Einkareknir fjölmiðlar sem sækja um rekstrarstuðning skulu uppfylla skilyrði samkvæmt 62. gr. g. laga um fjölmiðla nr. 38/2011.

4. gr. Mat á umsóknum.

Nefndin skal meta umsóknir út frá þeim skilyrðum sem fram koma í X. kafla B. laga um fjölmiðla nr. 38/2011.

Nefndin skal tryggja að mat á umsóknum sé hlutlægt og án mismununar með áherslu á jafnræði meðal umsækjenda.

Í því skyni að sannreyna stuðningshæfan rekstrarkostnað skv. 62. gr. h. getur úthlutunarnefnd óskað eftir viðeigandi upplýsingum frá umsækjanda, til að mynda virðisaukaskattsskýrslum og bókhaldi. Séu gögn ófullnægjandi skal úthlutunarnefnd veita umsækjanda frest til að skila inn fullnægjandi gögnum.

Við mat á umsóknum getur úthlutunarnefnd aflað álits sérfróðra aðila um hvort skilyrði 62. gr. g. séu uppfyllt.

Telji úthlutunarnefnd að umsókn fjölmiðlaveitu uppfylli skilyrði fyrir rekstrarstuðningi samþykkir hún stuðning en ella skal umsókn hafnað. Ef nefndin telur að tilteknir kostnaðarliðir falli ekki undir stuðningshæfan rekstrarkostnað skv. 62. gr. h. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 skal hún leiðbeina umsækjanda þar um og gefa honum kost á að leggja fram nýtt yfirlit um stuðningshæfan rekstrarkostnað.

Berist umsókn um rekstrarstuðning eftir umsóknarfrest ákveðnum í reglugerð skal vísa henni frá. Heimilt er þó að taka umsókn til meðferðar hafi hún borist að þessum fresti liðnum ef gildar ástæður eru fyrir töfinni. Úthlutunarnefnd metur í hverju tilviki fyrir sig hvað telja skuli gildar ástæður í þessu sambandi.

Berist nefndinni ekki fullnægjandi gögn að loknum veittum fresti eða bendi gögn málsins til þess að kostnaðaruppgjör sé ekki í samræmi við ákvæði laga um fjölmiðla nr. 38/2011 skal hún hafna beiðni um rekstrarstuðning.

5. gr.Úthlutun rekstrarstuðnings.

Nefndin skal taka ákvarðanir um úthlutun rekstrarstuðnings á grundvelli mats á umsóknum og í samræmi við fjárheimildir.

Rekstrarstuðningur skal að hámarki vera 25% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði umsækjanda, sbr. 62. gr. h. laga um fjölmiðla. Stuðningur til hvers umsækjanda getur þó ekki orðið hærri en sem nemur 22% af fjárveitingu til verkefnisins. Staðbundnir fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðisins, þar sem efnisskírskotun er staðbundin og höfðar aðallega til notenda sem tengsl hafa við útbreiðslusvæði miðils, fá 20% álag á stuðningsfjárhæð að skilyrðum uppfylltum.

Nefndin skal tilkynna umsækjendum um niðurstöður úthlutunar með skriflegum hætti eftir að ákvörðun hefur verið tekin.

Niðurstöður úthlutunar skulu birtar opinberlega og á aðgengilegan hátt til að tryggja gagnsæi.

6. gr. Heimild til endurupptöku.

Komi í ljós að rekstrarstuðningur við umsækjanda hafi verið of hár er úthlutunarnefnd heimilt að hlutast til um að fyrri ákvörðun verði tekin upp. Við meðferð slíkra mála skal úthlutunarnefnd afla nauðsynlegra gagna og gefa aðilum kost á andmælum áður en ákvörðun er tekin.

Leiði endurákvörðun til breytinga á fjárhæð endurgreiðslu til lækkunar skal umsækjandi endurgreiða ríkissjóði mismuninn innan tíu daga frá því að tilkynnt er um ákvörðunina, með vöxtum í samræmi við ákvörðun Seðlabanka Íslands um almenna vexti af peningakröfum.

Úthlutunarnefnd er heimilt að fresta afgreiðslu annarra umsókna sama umsækjanda þar til niðurstaða er fengin um hvort til endurákvörðunar kemur. Heimild til endurupptöku fellur niður að liðnum fjórum árum frá upphaflegri ákvörðun úthlutunarnefndar.

7. gr. Endanlegar ákvarðanir.

Ákvarðanir úthlutunarnefndar eru endanlegar á stjórnsýslustigi.

8. gr. Trúnaður og hagsmunatengsl.

Nefndarmenn og starfsmenn skulu gæta fyllsta trúnaðar varðandi upplýsingar sem þeir fá í starfi sínu.

Nefndarmenn skulu upplýsa um möguleg hagsmunatengsl og víkja sæti ef um er að ræða hagsmunaárekstra.

9. gr.Umsýsla.

Fjölmiðlanefnd sér um umsýslu umsókna og veitir úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð eftir nánara samkomulagi. Kostnaður við mat á umsóknum og aðra umsýslu skal greiddur úr ríkissjóði.

10. gr.Gildistaka.

Starfsreglur þessar eru settar samkvæmt 2. mgr. 62. gr. e. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 og öðlast þegar gildi. Við gildistöku starfsreglna þessara falla úr gildi starfsreglur úthlutunarnefndar nr. 1290/2024, sem settar voru á grundvelli laga nr. 53/2023 sem féllu úr gildi 1. janúar 2025.

Starfsreglur þessar falla úr gildi 1. janúar 2026, á sama tíma og lög nr. 66/2025.

F.h. úthlutunarnefndar, 3. desember 2025.

Anna Mjöll Karlsdóttir formaður.

B deild — Útgáfudagur: 5. desember 2025

Tengd mál