Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Hafnarfjarðarkaupstaður
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hafnarfjörður
Undirritunardagur
9. apríl 2026
Útgáfudagur
24. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 401/2026
9. apríl 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Hafnarfjarðarkaupstað.
Breyting á deiliskipulagi Suðurhafnar fyrir Óseyrarbraut 12b.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. apríl 2026 breyting á deiliskipulagi Suðurhafnar Hafnarfjarðar fyrir Óseyrarbraut 12b. Breytingin felst í því að suðaustur hlið byggingarreits lóðar Óseyrarbrautar 12B stækkar til norðausturs.
Málsmeðferð var skv. 2. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.
Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Hafnarfirði, 9. apríl 2026.
F.h. skipulagsfulltrúa,
Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi á tæknisviði.
B deild — Útgáfudagur: 24. apríl 2026