Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
28. maí 2025
Útgáfudagur
19. júní 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 662/2025
28. maí 2025
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna frístundabyggðar að Dímonarflötum.
Skipulagsstofnun staðfesti 28. maí 2025 breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. mars 2025.
Í breytingunni felst að skilgreint er tvískipt svæði fyrir frístundabyggð F39 að Dímonarflötum fyrir fimm lóðir, alls um 52 ha að stærð. Landbúnaðarland L2 minnkar sem breytingunni nemur.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 28. maí 2025.
Ólafur Árnason.
B deild - Útgáfud.: 19. júní 2025