Greiðsludreifing á sköttum, gjöldum og sektum
18. ágúst 2026
Umboðsmaður skuldara vekur athygli á að hjá Skattinum og sýslumönnum utan höfuðborgarsvæðisins er hægt að gera greiðsluáætlanir um skatta, gjöld og sektir. Áætlunin er meðal annars gerð í því skyni að létta á greiðslubyrði og fresta innheimtuaðgerðum.
Sjá nánar um greiðsluáætlanir á vef Skattsins.
