Tengjum ríkið 2025

Tengjum ríkið 2025 fór fram þann 18. september 2025 á Hilton Nordica. Yfirskrift ráðstefnunnar sneri að öryggi og stafrænni forystu á óstöðugum tímum.
Að vanda var fjöldi áhugaverðra erinda frá stofnunum sem hafa náð góðum árangri í stafrænni vegferð og stafrænni þjónustu. Fundarstjóri var Guðmundur Arnar Sigmundsson forstöðumaður netöryggissveitarinnar CERT-IS.
Tengjum ríkið 2025 - dagskrá
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra

Birna Íris Jónsdóttir tók við sem framkvæmdastjóri Stafræns Íslands í nóvember 2023. Hún er tölvunarfræðingur að mennt með MBA-gráðu og diplómanám í jákvæðri sálfræði. Áður en hún gekk til liðs við Stafrænt Ísland gegndi hún lykilstöðum í UT deildum hjá Landsbankanum, Sjóvá, Högum og Össur. Í frítíma sínum hleypur hún og gengur á eitt og eitt fjall.
Erindi Birnu ber titilinn:Lausamöl og grjóthrun: Óvissa og áskoranir stafrænnar framtíðar
Valeriya Ionan is a digital and innovation strategist, and Advisor to the First Deputy Prime Minister of Ukraine — Minister of Digital Transformation on Innovations, Digitalisation and Global Partnerships.
As former Deputy Minister at the Ministry of Digital Transformation of Ukraine, she helped lead Ukraine’s digital revolution, building products within Diia Ecosystem and shaping global tech diplomacy, as well as WINWIN, Brave1, United24 Media, and other flagship initiatives. She also led key national initiatives: EU integration, Diia.Business, Diia.Education, regional digitalisation, CDTO Campus, Digital State UA, and the launch of GGTC Kyiv in partnership with the World Economic Forum.
Valeriya has been recognized among the top future leaders by Mastercard Legacy, EYL40, ISF Fellow, Vogue Leaders, and UP100. She believes in breakthrough economic growth through innovation and has a background in entrepreneurship, management, and marketing.

Hlynur Bjarki Karlsson er gagnastjóri ríkisins hjá Stafrænu Íslandi. Hann er tölvunarfræðingur með MBA frá Háskólanum í Reykjavík og hefur víðtæka reynslu af hagnýtingu gagna. Áður starfaði hann meðal annars hjá CCP, Sainsbury’s og Marel, þar sem hann tók þátt í og leiddi umbætur í gagnavinnslu.
Erindi Hlyns ber heitið: Framtíðin nærist á gögnum, frá upplýsingum til tækifæra.

Ólafur Ingþórsson er UT og öryggisstjóri hjá Stafrænu Íslandi. Hann er verkfræðingur að mennt með MSc gráðu frá University of Maryland og hefur starfað lengi sem stjórnandi og ráðgjafi í upplýsinga- og fjarskipatækni. Áður starfaði hann meðal annars hjá Origo, CCP og Símanum þar sem hann stýrði fjölmörgum þróunar, innleiðingar- og rekstrarverkefnum.
Erindi Ólafs ber heitið: Að sigla örugglega í stafrænum sjó

Rannveig Þórisdóttir er sviðsstjóri hjá rikislögreglustjóra þar sem hún ber m.a. ábyrgð á tölvu- og tæknimálum fyrir embættið og miglægri þjónustu fyrir lögregluna. Hún hefur tekið þátt í stafrænni þróun innan lögreglunnar og þá sérstaklega þeirri þróun sem hefur orðið í stafvæðingu á þjónustu við almenning. Rannveig er með MA gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands og hafa rannsóknir hennar einna helst snúið að upplifun almennings af lögreglu og trausti til hennar.
Erindi Rannveigar ber heitið: Rými innan ramma – stafræn vegferð með öryggi að leiðarljósi.

Kristín er lögfræðingur frá HÍ og LLM frá háskólanum í Lundi. Starfaði síðast sem dósent við lagadeild HR og þar áður lögfræðilegur aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. Hef setið í ýmsum stjórnum, þ.á m. stjórn dómstólasýslunnar, Samkeppniseftirlitinu og Fjármálaeftirlitinu.
Erindi Kristínar ber heitið: Stafrænir dómstólar og réttaröryggi.

Ástríður Jóhannesdóttir er framkvæmdastjóri landskjörstjórnar og hefur mikla reynslu af störfum í opinberri stjórnsýslu. Hún er lögfræðingur að mennt með framhaldsnám í opinberri stjórnsýslu (MPA). Í starfi sínu hjá Landskjörstjórn leiðir hún daglegan rekstur landskjörstjórnar sem hefur yfirumsjón með framkvæmd kosninga og annast framkvæmd kosningalaga.
Erindi Ástríðar ber heitið: Stafrænir dómstólar og réttaröryggi

Guðmundur Arnar Sigmundsson hefur starfað sem forstöðumaður netöryggissveitar CERT-IS síðastliðin 4 ár þar sem hann hefur leitt öra uppbyggingu sveitarinnar í stuðningi við mikilvæga innviði landsins.
Hann er með mastersgráðu í fjarskiptum með sérstaka áherslu á tölvuöryggi frá háskólanum í Karlsruhe í Þýskalandi. Fyrir störf sín hjá CERT-IS starfaði hann við kerfis- og netrekstur hjá Vodafone og Origo auk þess að hafa verið net- og öryggisarkitekt fyrir fjarskiptarisann Ericsson í Svíþjóð.
Hann býr ásamt konu sinni og þrem sonum í Mosfellsbæ og veit fátt skemmtilegra en að stunda sjósport í kringum eyjuna sýna þar sem sumarhús fjölskyldunnar er
Að morgni ráðstefnudags voru haldnar vinnustofur sem sneru að þjónustu, tækniumhverfi og þróun, Ísland.is og framtíðarsýn stafrænnar vegferðar hins opinbera. Þátttakendur á vinnustofunum fengu sérstakt boð en þar á meðal voru forstöðumenn, þjónustustjórar, vefstjórar, tæknistjórar og gagnastjórar stofnana sem og fulltrúar fyrirtækja. Markmið með vinnustofunum var markvisst framlag í þá stafrænu þróun sem er framundan næstu misserin.
Vinnustofur Tengjum ríkið 2025
Á vinnustofunni verður rýnt í Þjónustukerfi Ísland.is og tekið samtal um kosti þess, virkni og framtíðarsýn.
Athugið að vinnustofan er lokuð og aðeins ætluð boðsgestum.
Á vinnustofunni verður unnið í hópum en leitast verður við að svara spurningum á borð við:
Hvernig þróum við sameiginlega gæðavitund þeirra sem vinna efni fyrir Ísland.is?
Hvaða tæknilegu hjálpartól gagnast okkur við að auka gæði efnis?
Hvernig gengur að fylgja efnisstefnu Ísland.is?
Á vinnustofunni verða kynnt drög nýrra gæðaviðmiða fyrir efni á Ísland.is og þau prufukeyrð með þátttakendum, fjallað verður um ábendingar sem komið hafa fram á fundum vefstjóra á árinu og hlutverk vefstjóra þegar kemur að gæðamati, viðhaldi og yfirsýn yfir efni.
Athugið að vinnustofan er lokuð og aðeins ætluð boðsgestum.
Vinnustofan mun að þessu sinni snúast um nýtingu gagna. Markmiðið er að samræma sýn tæknistjóra og gagnafulltrúa um stefnu sem einfaldar rauntíma gagnasamskipti og styður heildræna gagnagreiningu. Skoðaðir verða möguleikar á framtíðarskipulagi sem tryggir öruggt og samtengt vistkerfi opinberra gagna.
Athugið að vinnustofan er lokuð og aðeins ætluð boðsgestum.
Á vinnustofunni ræðum við hvernig framtíðarsýn Stafræns Íslands getur orðið drifkraftur fyrir samkeppnishæfni Íslands. Við skoðum helstu tækifæri og áskoranir til framtíðar og hvernig við getum bæði nýtt tækifærin og mætt áskorunum á markvissan hátt.
Athugið að vinnustofan er lokuð og aðeins ætluð boðsgestum.
