Skilamat
Um skilamatið
Í samræmi við útboðsgögn (kafli 1.5.3) verður gert skilamat í lok hvers verksamnings. Markmiðið með skilamatinu er að viðhalda gæðum verkefna og skapa virkt umbótasamtal við teymi innan samnings hvernig kaupendur og seljendur megi bæta framkvæmd samningsins.
Veginn meðal stigafjöldi allra skilamata teymis kemur í stað stigafjölda fyrir verkefni í upphaflegu mati. Verð og gæði vegna þekkingar og reynslu teymis eru föst út tíma samningsins. Þannig er það aðeins sá stigafjöldi sem fékkst fyrir verkefnahlutann, sem gilti 50% af
heildarstigafjölda, sem breytist einu sinni á ári í samræmi við frammistöðu.
Skilaboð til skilastjóra
Hér að neðan eru drög að skilamati sem sent er til skilastjóra til endurgjafar. Hver staðhæfing fær annaðhvort 1 eða 0 i mati. Neðstu 2 staðhæfingar eru hugsaðar sem bónus. Þannig er í raun fullt hús 95%, en getur hæst orið 100% með bónusspurningum um viðbótargæði.
Með þessari aðferð er gerð atlaga að þvi að taka huglægt mat úr matsferlinu. Þráttt fyrir það gætu komið upp atvik þar sem huglægt mat er nauðsynlegt.
Staðhæfing | 1/0 | Vigt | Skýring og leiðbeiningar |
|---|---|---|---|
DoD uppfyllt að fullu. | 1/0 | 15% | Þessu skal lokið fyrir skilamatsfund. |
Verkefnið var klárað innan gildistíma samnings (25% vikmörk). | 1/0 | 15% | Verði tafir á verkefni sem ekki má rekja til teymis, t.d. tafir í viðbrögðum stofnana eða breytt umfang verkefnis eftir undirritun samnings skal gefa fulla einkunn hér. |
Samningurinn var innan áætlaðs tímafjölda samnings (15% vikmörk) | 1/0 | 15% | Verði breytingar á verkefni sem ekki má rekja til teymis, t.d. tafir í viðbrögðum stofnana eða breytt umfang verkefnis eftir undirritun samnings skal gefa fulla einkunn hér. |
Skilastjóri tilkynnti tengilið Stafræns Íslands tímanlega ef fyrirséð var að samningur færi umfram áætlað umfang og gildistíma. | 1/0 | 10% | Krafa skv. samning að skilastjóri tilkynni tengilið Stafræns Íslands ef þetta er fyrirséð, jafnvel þó að teymi beri ekki ábyrgð á töfum. |
Skilastjóri hélt tengilið Stafræns Íslands upplýstum um framvindu samnings og stöðu á áætluðum tímum. | 1/0 | 10% | Þarfnast ekki skýringa. |
Samskipti í verkefninu voru skýr og gagnsæ án þess að upplýsingar dreifðust um margar ólíkar samskiptaleiðir, Stafrænt Ísland hafði fullnægjandi aðkomu að samskiptum sem vörðuðu verkefnið. | 1/0 | 5% | Samskiptin eiga að vera skýr og ekki umræður um verkefnið á mörgum mismunandi stöðum |
Tímaskýrslur voru skýrar, sundurliðaðar og rekjanlegar niður á einstaklinga og verkþætti. | 1/0 | 10% | Sja nýja kröfu til reikninga til að tryggja skilvirka og úrvinnslu og rýni á reikningum. |
Skilgreindum markmiðum samningsins var náð. | 1/0 | 15% | Markmiðum sem fram koma í samning skal náð. |
Verkefnið var klárað vel innan áætlað umfangs (10%) eða innan gildistíma (10%). | 1/0 | 2,5% | Viðbótargæði (bónus). |
Teymið fann og innleiddi betri eða snjallari lausnir en lagt var upp með, sem fóru fram úr væntingum | 1/0 | 2,5% | Viðbótargæði (bónus). |
