Mín heilsa á Ísland.is
Á Ísland.is finnur þú þjónustu hins opinbera á einum stað. Heilbrigðisupplýsingar eru nú þegar farnar að birtast á Mínum síðum á Ísland.is og enn fleiri upplýsingar og aðgerðir á leiðinni. Þannig verða Mínar síður á Ísland.is heimili stafrænnar heilbrigðisþjónustu.
Hvað er Mín heilsa?
Mín heilsa sameinar heilbrigðisupplýsingar og þjónustu á einn stað. Þar má finna það efni og aðgerðir sem fólk þekkir frá Mínum síðum á Heilsuvera.is ásamt því að við getum birt upplýsingar frá öðrum stofnunum og aðilum innan heilbrigðiskerfisins og þannig veitt enn betri þjónustu og yfirsýn.
Hvað er komið á Ísland.is?
Á Mín heilsa á Ísland.is getur þú nú þegar séð:
Tilvísanir
Líffæragjöf
Upplýsingar um biðlista
Greiðsluþátttaka lyfja
Blóðflokk
Yfirlit yfir bólusetningar
Næstu vikur og mánuði munu nýir eiginleikar og virkni bætast við.
Hvað færist frá Heilsuvera.is?
Vinna stendur yfir að útfæra og þróa:
Yfirlit yfir tímabókanir
Spurningalistar
Skilaboð
Meðganga
Meðferðir
Lyfjaávísanir og endurnýjun
Hvað verður um Heilsuvera.is?
Þegar öll þjónusta er komin yfir á Ísland.is verður lokað fyrir Mínar síður á Heilsuveru.is. Þá verða allar þínar heilbrigðisupplýsingar komnar inn á Ísland.is.
Áætlað er að þetta muni gerast í september 2026.
Á heilsuvera.is má finna mikið af vönduðu fræðsluefni, það efni verður áfram aðgengilegt á heilsuvera.is. Verkefni okkar snýst aðeins um þjónustuvefinn sem þarf að auðkenna sig inn á með rafrænum skilríkjum.
Hvað þýðir þetta fyrir mig?
Þú getur áfram notað Mínar síður á heilsuvera.is eins og áður, sumt er hægt að gera bæði á heilsuvera.is og á Ísland.is.
Þegar að öll þjónusta af heilsuvera.is verður komin yfir á Ísland.is munu Mínar síður á heilsuvera.is loka og Ísland.is er þá þinn viðkomustaður fyrir þínar heilbrigðisupplýsingar.
Við hvetjum þig til að skrá þig inn á Mínar síður á Ísland.is og prófa.
Ef eitthvað er óljóst eða þú rekst á eitthvað sem má fara betur tökum við á móti spurningum og ábendingum á island@island.is
Hvað gerist næst?
Með þessari vinnu skapast tækifæri til að þróa og tengja enn fleiri stofnanir og þjónustuaðila við Ísland.is, bæði opinbera og einkarekna. Þannig veitum við heildstæðari þjónustu og einföldum daglegt líf. Aðgengi að stafrænni heilbrigðisþjónustu verður þannig samfellt og eflt til að spara þér sporin, allt á einum stað á Ísland.is eða í Ísland.is appinu.
