Leiðbeiningar: umboð fyrir einstaklinga og fjölskyldur
Með rafrænu umboði geta einstaklingar skráð sig inn fyrir hönd annarra og þannig haft aðgang að upplýsingum og framkvæmt ýmsar aðgerðir fyrir þeirra hönd.
Dæmi um hvernig umboð nýtist:
Aðstandandi getur fylgst með Mínum sínum á Ísland.is fyrir foreldri eða ættingja sem á erfitt með aðgengi að stafrænum upplýsingum, til dæmis vegna öldrunar eða veikinda.
Einstaklingur sem ekki á rafræn skilríki getur skráð umboðsmann til að sinna málum fyrir sína hönd, til dæmis senda inn umsóknir.
Foreldri getur sótt um skólavist í framhaldsskóla fyrir hönd barns síns.
Persónulegur talsmaður fatlaðs einstaklings getur fylgst með stafrænu pósthólfi fyrir hönd viðkomandi.
Að skrá sig inn í umboði sem þér hefur verið veitt
Ef einhver hefur veitt þér umboð færðu upplýsingar um gildissvið umboðsins í upplýsingapósti frá Ísland.is. Þá getur þú sinnt þeim erindum fyrir hönd viðkomandi.
Auðvelt er að virkja umboðið:
Þú skráir þig inn með þínum persónulegu rafrænu skilríkjum á Mínum síðum.
Þú skiptir um notanda með því að smella á nafnið þitt í efra hægra horni og velur: Skipta um notanda.
Þá birtast þeir einstaklingar og fyrirtæki sem þú hefur aðgang að, þar á meðal þau sem veitt hafa þér umboð.
Einstaklingur sem fær umboð getur einnig eytt því á Mínum síðum.
Að veita eða afturkalla umboð
Það er auðvelt að veita og afturkalla rafræn umboð.
Veita umboð
Þú skráir þig inn með þínum persónulegu rafrænu skilríkjum á Mínar síður.
Þú velur Rafræn umboð. Þar getur þú stillt upp umboðum og ákvarðað hversu lengi þau eiga að gilda.
Þú skráir inn kennitölu þess sem á að fá umboðið og velur viðeigandi umboð, réttindi og gildistíma.
Sá sem þú veitir umboðið fær tilkynningu um aðgang sinn og getur í kjölfarið skráð sig inn fyrir þína hönd á meðan umboðið er í gildi.
Þú sérð yfirlit yfir umboð sem þú hefur veitt eða fengið á svæðinu Rafræn umboð á Mínum síðum. Þar getur þú einnig nálgast yfirlit yfir allar innskráningar og aðgerðir tengdar umboðum undir Notkun í valmyndinni.
Afturkalla umboð sem ég hef veitt
Einstaklingur sem hefur veitt öðrum umboð getur alltaf afturkallað umboðið í nokkrum einföldum skrefum.
Þú skráir þig inn með þínum persónulegu rafrænu skilríkjum á Mínar síður á Ísland.is.
Velur Rafræn umboð.
Velur þann einstakling sem á að afturkalla umboðið hjá og eyðir umboðinu.
Einstaklingurinn sem áður hafði umboð mun ekki lengur getað skráð sig inn fyrir hönd þess sem hann hafði umboð fyrir, og fær sjálfvirka tilkynningu þess efnis.
Að skrá sig inn fyrir hönd barna
Foreldrar eru sjálfkrafa með umboð fyrir börn sín til 18 ára aldurs. Foreldrar og aðrir forsjáraðilar geta skráð sig inn á Mínar síður fyrir hönd barna sinna, óháð búsetu.
Þú skráir þig inn með þínum persónulegu rafrænu skilríkjum á Mínar síður.
Þú skiptir um notanda með því að smella á nafnið þitt í efra hægra horni og velur: Skipta um notanda.
Þá birtast þeir einstaklingar sem þú hefur umboð fyrir.
Kerfið sækir upplýsingar um forsjártengsl til Þjóðskrár. Ef þú sérð ekki nafn barnsins, þar sem forsjártengsl eru til staðar, þarftu að hafa samband við Þjóðskrá.
Veita umboð á pappír
Einstaklingar sem ekki eiga rafræn skilríki geta skráð umboðsmann til að sinna málum fyrir sína hönd með því að skila inn umsókn til Ísland.is.
Sá sem fær umboðið getur í kjölfarið skráð sig inn sig á Mínar síður viðkomandi og framkvæmt þær aðgerðir sem umboðið nær til.
Þetta umboð veitir aðeins aðgang að stafrænum þjónustum opinberra aðila sem hafa tengst Umboðskerfi Ísland.is, en ekki öðrum þjónustum eða kerfum. Yfirlit yfir aðila sem tengst hafa kerfinu er að finna undir hnappnum Rafræn umboð á Mínum síðum.
Aðeins einstaklingar geta veitt umboð til annara einstaklinga á pappír, umsókn þessi er ekki ætluð fyrirtækjum.
Umsóknarferlið er í nokkrum einföldum skrefum:
Þú prentar út þetta eyðublað: Umboð til að sinna málum gegnum stafræna þjónustu Ísland.is.
Fyllir út alla reiti eyðublaðsins.
Færð tvo votta til að staðfesta umsóknina (ef vottar eru erlendir þarf að skila afriti af skilríkjum þeirra með eyðublaðinu).
Skannar eyðublaðið eða tekur mynd af því.
Sá sem verða á umboðsmaður sendir eyðublaðið til Ísland.is í gegnum umsóknarform hér að neðan.
Umboðsmaðurinn fær tilkynningu um virkni umboðsins á það netfang sem viðkomandi tilgreindi þegar hann sótti um, innan 2-3 daga.
Alltaf er hægt að afturkalla umboðið í gegnum Rafræn umboð á Mínum síðum Ísland.is eða í persónu hjá embættum sýslumanna víðsvegar um landið.
Eyðublaðið er einnig aðgengilegt á ensku.
Umboð persónulegs talsmanns
Lögráða einstaklingar sem vegna fötlunar eiga erfitt með að gæta hagsmuna sinna eiga rétt á að velja persónulegan talsmann sér til aðstoðar. Sýslumenn halda utan um samninga á milli einstaklinga og persónulegra talsmanna en sótt er um slíka samninga á vef sýslumanna.
Persónulegur talsmaður getur til dæmis skráð sig inn á Mínar síður á Ísland.is fyrir hönd þeirra sem hann aðstoðar ef samningurinn tilgreinir þau réttindi.
Þú skráir þig inn með þínum persónulegu rafrænu skilríkjum á Mínar síður.
Þú skiptir um notanda með því að smella á nafnið þitt í efra hægra horni og velur að Skipta um notanda.
Þá birtast þeir aðilar og fyrirtæki sem þú hefur aðgang að.
Sýslumenn veita nánari upplýsingar um hlutverk persónulegra talsmanna og afturköllun slíkra umboða.
Spurt og svarað um umboð
Ef þú hefur veitt rafrænt umboð getur þú valið Notkun úr hliðarvalmynd til að sjá yfirlit yfir allar innskráningar í þínu umboði.
Þau sem eru ekki með rafræn skilríki og hafa veitt umboð á pappír geta látið umboðsmann sinn skrá sig inn fyrir sína hönd og sýnt þeim upplýsingar um hvað hefur verið gert í þeirra umboði.
Þú sérð hvaða umboð þú hefur og hefur veitt öðrum undir Mín umboð.
Já, þú veitir öðrum aðila umboð á sama hátt.
Þú velur Veita umboð í hliðarvalmynd.
Fylltu inn kennitölu þess sem á að fá umboðið, hvaða umboð þú vilt veita og viðeigandi réttindi. Þú getur veitt fleiri en einum sama umboðið.
Veldu hversu lengi umboðið á að gilda og staðfestu.
Þegar þú hefur lokið skráningu fær viðkomandi tilkynningu í tölvupósti og getur notað umboðið fyrir þína hönd.
Umboð fellur sjálfkrafa úr gildi þegar sá sem veitir það deyr.
Þú getur spurt í netspjallinu hér á síðunni, sent fyrirspurn á netfangið island@island.is.
