Útboð - Stafrænt Ísland
18. júní 2021
Stafrænt Ísland stendur fyrir útboði hvað varðar hugbúnaðarþróun byggt á Agile hugmyndafræðinni.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3BNMoVcyrVsgQkNbU7y3Rm/411207e4f183475e294a6c7209ada539/island-is-linuteikningar-VB-08-54.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Efnisvinna fyrir Sýslumenn](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3BNMoVcyrVsgQkNbU7y3Rm/411207e4f183475e294a6c7209ada539/island-is-linuteikningar-VB-08-54.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Útboðið er sambærilegt því sem var gert í upphafi árs 2020 en í kjölfar þess var gerður samstarfssamningur við 18 hugbúnaðarteymi. Þau teymi hafa komið að þróun á Ísland.is, Ísland.is appi, nýju umsóknarkerfi, nýjum mínum síðum, tengingum Straumsins ásamt fjölda annarra stafrænna lausna.
Skilafrestur er til kl. 12 þann 19.júlí og opnun tilboða kl. 13 sama dag.
Kynningarfundur verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica þann 22. Júní kl. 9.30.
Mikilvægt er að skrá sig á fundinn en skráning fer fram hjá Hafdísi Freysdóttur hjá Ríkiskaupum- hafdisv@rikiskaup.is.
Nánari upplýsingar um útboð má finna á Útboðsvefur.is.