Umsókn um starfsnám í lögreglufræðum
12. febrúar 2021
Hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að starfa sem lögreglumenn að sækja um. Umsókn um starfsnám hjá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar (MSL) verður í annað árið í röð á Ísland.is fyrir nám 2021-2023.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/5ug0pYntiRJxQqeF2dGWbP/c7919f7a757504f6bf4616e0e3a083b3/1217131.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Lögreglan](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/5ug0pYntiRJxQqeF2dGWbP/c7919f7a757504f6bf4616e0e3a083b3/1217131.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Umsókn um starfsnám hjá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar (MSL) verður í annað árið í röð á Ísland.is fyrir nám 2021-2023.
Starfsnám í lögreglufræðum er mikilvægur þáttur í lögreglufræðanáminu en til þess að öðlast starfsréttindi sem lögreglumaður verða nemar að ljúka starfsnáminu. Áhersla er lögð á verklega lögreglutengda þjálfun undir handleiðslu reyndra lögreglumanna og raunhæf verkefni með innsýn í störf rannsóknarlögreglu.
Nemendur sem sem hafa áhuga þurfa fyrst að sækja um lögreglufræðinám rafrænt á vefsíðu Háskólans á Akureyri. Standist umsækjandi skilyrði HA um háskólavist fær hann póst í gegnum umsóknargátt sína þar sem hann getur sótt um starfsnám hjá MSL í gegnum Ísland.is. Í fyrra sóttu 260 um starfsnám.
Nauðsynlegt er að sækja um starfsnámið hjá bæði Háskólanum á Akureyri og Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar, annars telst umsóknin ekki fullgild.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3M59Nbd3P2glEZrzBHOp1X/50c1450787481658fd41bd8315ed8940/1261483-800x300.jpg?w=50)
![Lögreglubíll](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3M59Nbd3P2glEZrzBHOp1X/50c1450787481658fd41bd8315ed8940/1261483-800x300.jpg)
Hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að starfa sem lögreglumenn að sækja um og kynna sér vel umsóknar- og inntökuferlið á heimasíðu MSL
Umsóknarfresturinn er frá 15.febrúar 2021 til og með 9.apríl 2021.
Hægt er að senda fyrirspurnir í tengslum við starfsnámið á netfangið starfsnam@logreglan.is