Fundur um þjónustu Stafræns Íslands
18. júní 2020
Stafrænt Ísland stóð fyrir fundi þriðjudaginn 16. júní frá 9–11 í Hljóðbergi, Hannesarholti.
Markmið fundarins var að hefja með formlegum hætti samstarf við stofnanir með kynningu á þeirri þjónustu sem Stafrænt Ísland býður upp á. Straumurinn (X-Road) fékk sérstakan sess en það verkefni á erindi við allar ríkisstofnanir.
Dagskrá:
9.00 Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra opnaði fundinn.
9.05 Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands fjallaði um verkefni og markmið verkefnastofunnar.
9.35 Brynhildur Þorgeirsdóttir og Guðlaug Dröfn Þórhallsdóttir frá Dómsmálaráðuneytinu héldu kynningu á Réttarvörslugáttinni og mikilvægi stafrænnar þekkingar innan ráðuneyta.
10.05 Kaffihlé
10.20 Vigfús Gíslason, verkefnastjóri Stafræns Íslands fór yfir Strauminn (X-Road) og tengingu stofnana við hann.
11.00 Spurningar. Starfsfólk Stafræns Íslands tók við fyrirspurnum.
Fullt hús var í Hljóðbergi sem og ráðstefnunni streymt beint á YouTube-rás Stafræns Íslands og var mikill áhugi á þeim verkefnum sem unnið er að. Niðurstaða fundarins var að það þyrfti annan fund með haustinu og fara yfir enn fleiri verkefni.