Stafrænt Ísland kynnt í Belfast
1. október 2026
Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, tók nýverið þátt í árlegri ráðstefnu Northern Ireland Fiscal Council í Belfast

Ráðið er óháður eftirlitsaðili með opinberum fjármálum á Norður-Írlandi. Á ráðstefnunni ræddu sérfræðingar, hagfræðingar og stefnumótendur helstu áskoranir í opinberum fjármálum, meðal annars launakostnað hins opinbera og sjálfbærni ríkisfjármála til lengri tíma.
Vegferð sem vekur athygli
Birna Íris kynnti Ísland.is og Stafrænt Ísland og sat svo í pallborði um umbreytingu og sjálfbærni hins opinbera. Árangur Íslands í stafrænni þjónustu hefur vakið athygli víða og vakti kynningin mikinn áhuga gesta sem höfðu fjölmargar spurningar um verkefnið.
Gögn og mælikvarðar
Spurningar gesta snerust einkum um tvennt. Annars vegar um gagnasamskipti milli stofnana og vilja þeirra til að deila gögnum. Þar gegnir Straumurinn lykilhlutverki, en hann er öruggur gagnaflutningsvettvangur sem tengir kerfi hins opinbera saman.
Hins vegar var spurt hvernig tryggja megi að fjárfesting í stafrænni þjónustu skili ávinningi og hvernig honum sé fylgt eftir. Svarið felst í stöðugum mælingum, virku samtali við notendur og stofnanir og þeirri sýn að öll okkar vinna sé raunverulega í þágu almennings.
