Fara beint í efnið
Stafrænt Ísland Forsíða
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Stafræn skref stofnana 2024

27. september 2024

Óskum Samgöngustofu og Sjúkratryggingum til hamingju með fullt hús stiga.

Stafræn_skref_2024

Stafrænt Ísland veitti nú í þriðja sinn samstarfsstofnunum viðurkenningu fyrir þau Stafrænu skref sem þær hafa tekið.

Við óskum viðurkenningarhöfum innilega til hamingju með árangurinn um leið, þökkum þeim kærlega fyrir gott samstarf á árinu sem er að líða og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands

9 Stafræn skref

Þrjár stofnanir hafa nú tekið öll skrefin en þau eru: Stafrænt pósthólf, Innskráning fyrir alla, Umsóknarkerfi Ísland.is, Mínar síður Ísland.is, vefsíða á Ísland.is, spjallmennið Askur, þjónustuvefur, Ísland.is appið og Straumurinn.

  • Samgögnustofa 2024.

  • Sjúkratryggingar 2024.

  • Sýslumenn 2023.

8 Stafræn skref

  • Fjársýslan hefur tekið öll stafrænu skrefin nema spjallmennið Ask, þar af 2 skref síðasta árið.

  • Tryggingastofnun hefur sömuleiðis tekið öll stafrænu skrefin nema ASK og hafa tekið 6 skref síðasta árið.

7 Stafræn skref

  • Húsnæðis og mannvirkjastofnun hefur bætt við sig einu skrefi frá því í fyrra og vantar nú vefsíðu og Ask til að ná fullu húsi stiga.

  • Vinnueftirlitið hefur sömuleiðis tekið eitt skref frá því í fyrra og vantar spjallmennið og þjónustusíðu.

6 Stafræn skref

  • Fiskistofa.

  • Lögreglan.

  • Útlendingastofnun.

Stafrænu skrefinu eru hvataverðlaun fyrir opinbera aðila og er ætlað að ýta undir nýtingu fjárfestingar og markmið ráðuneytisins með því að veita þeim opinberu aðilum viðurkenningu sem nýta opin og sameiginleg tól sem þróuð hafa verið af Stafrænu Íslandi.

Hvataverðlaunin Stafræn skref voru veitt í fyrsta skipti árið 2022 en skrefin eru níu talsins.

Á vef Stafræns Íslands geta stofnanir flett upp og fylgst með þeim Stafrænu skrefum sem þær hafa tekið með Stafrænu Íslandi. Taka skal fram að ekki eiga öll skref við allar stofnanir og að skrefin munu þróast eftir því sem fram líða stundir.

Skoða Stafræn skef opinberra aðila.