Ný viðmið um notkun gervigreindar í hugbúnaðarþróun
17. apríl 2026
Stafrænt Ísland hefur birt ný viðmið um notkun gervigreindar í hugbúnaðarþróun. Markmið viðmiðanna er að styðja við ábyrga, örugga og markvissa notkun gervigreindar í þróunarstarfi og tryggja gæði þeirra lausna sem unnið er að.

Gervigreindartól hafa á skömmum tíma orðið mikilvægur hluti af verkfærakistu þróunarteyma og geta aukið bæði hraða og skilvirkni. Samhliða þeirri þróun skapast þó nýjar áskoranir, meðal annars hvað varðar meðferð gagna, öryggi, rekjanleika og gæði kóða. Viðmiðin taka á þessum þáttum og setja skýran ramma um hvernig beita skuli gervigreind í þróunarferlinu.
Í viðmiðunum er meðal annars fjallað um:
ábyrga notkun gervigreindar í daglegu þróunarstarfi
meðferð og vernd gagna
kröfur um yfirferð, prófanir og gæðatryggingu
gagnsæi og skráningu á notkun gervigreindar í þróun
Viðmiðin eru hugsuð sem lifandi rammi sem þróast í takt við tækni og reynslu, með áherslu á ábyrga og markvissa nýtingu nýjustu tækni til að efla nýsköpun og bæta þjónustu.
Stafrænt Ísland hvetur alla sem koma að hugbúnaðarþróun að kynna sér viðmiðin og nýta þau í sínu daglega starfi. Jafnframt er sérstaklega kallað eftir ábendingum og tillögum að umbótum, enda verða viðmiðin í stöðugri endurskoðun.
Nánari upplýsingar og viðmiðin sjálf má finna hér
