Loftbrú - verkefnasaga
1. júlí 2020
Verkefnið Loftbrú er samstarf Samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytis og Vegagerðarinnar en útfært af Ísland.is með þátttöku flugfélaga í innanlandsflugi.
Um verkefnið:
Loftbrú veitir 40% afslátt af heildarfargjaldi fyrir allar áætlunarleiðir innanlands til og frá höfuðborgarsvæðinu fyrir notendur innan skilgreindar fjarlægðar frá höfuðborginni. Fullur afsláttur er veittur hvort sem valið er afsláttarfargjald eða fullt fargjald. Hver einstaklingur getur fengið lægri fargjöld fyrir allt að þrjár ferðir til og frá Reykjavík á ári (sex flugleggir). Út árið 2020 gilda afsláttarkjörin fyrir eina ferð til og frá Reykjavík.
Áskorun:
Helsta áskorun verkefnisins var að samræma vinnu teymis Ísland.is og flugfélaga en útfæra þurfti vefþjónustur fyrir flugfélög til að kalla á upplýsingar fyrir bókunarafslátt. Tíminn var afar stuttur og var tæknileg þróun því unnin samhliða greiningum og gerð notendaskilmála. Gæta þurfti þess að uppfylla persónuvernd en verkefnið gengur út á útgefinn einstaklingskóði sem notendur nálgast á Ísland.is er nýttur í bókunarvél flugfélags.
Ávinningur:
Ávinningur verkefnisins er að framkvæma áætlun stjórnvalda um að styrkja þá sem búa fjarri höfuðborginni til að fljúga til og frá höfuðborgarsvæðinu 3 svar sinnum á ári.
Nánar um verkefnið: