Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Stafrænt Ísland Forsíða
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Ísland.is með 3 tilnefningar SVEF 2026

23. mars 2026

Verkefni á vegum Stafræns Íslands fá þrjár tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna 2026.

Ísland.is og Mínar síður Ísland.is fá tilnefningar til SVEF verðlaunanna 2026 í flokknum Opinber vefur ársins og Umsóknarkerfi Ísland.is tilnefningu í flokknum Stafræn lausn ársins.

Alls eru 79 veflausnir tilnefndar til Íslensku vefverðlaunanna í ár en aðeins sextán þeirra hreppa verðlaun. Verðlaunahátíðin fer fram fram í 25. sinn í Hörpu þann 26. mars næstkomandi.

Samtök vefiðnaðarins (SVEF) eru fagsamtök þeirra er starfa að vefmálum á Íslandi. Félagsmenn SVEF eru um 400 talsins en markmið samtakanna er meðal annars að miðla þekkingu og efla fagleg vinnubrögð í greininni.

Nánari upplýsingar um SVEF og íslensku vefverðlaunin er að finna á vefsíðu SVEF.

Nánari upplýsingar um tilnefningarnar má finna á Vísi.

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.