Gervigreindarhakkaþon Stafræns Íslands
19. október 2026
Starfsfólk Stafræns Íslands tók frá tíma nýverið til að taka þátt í gervigreindarhakkaþoni þar sem markmiðið var að finna leiðir til að vinna hraðar og betur og bæta þjónustu hins opinbera við almenning og fyrirtæki.

Hakkaþon
Hakkaþon er stuttur viðburður þar sem fólk vinnur hvert í sínu lagi eða í teymum og þróar hugmynd áfram í frumgerð á skömmum tíma. Áherslan er á sköpun, tilraunir og samvinnu en ekki að skapa fullkomna útfærslu. Markmiðið með hakkaþoninu að prófa nýjar leiðir og sjá hversu hratt megi hlaupa með nýtingu gervigreindar.
Fjölbreytt verkefni
Verkefnin voru afar fjölbreytt. Sum sneru að sjálfvirknivæðingu og betri yfirsýn innan Stafræns Íslands. Önnur snerust um aðgengilegra efni á Ísland.is, forvirka þjónustu þar sem hið opinbera tekur fyrsta skrefið, eftirlit með svikasíðum og rekstur flókinna tölvukerfa. Svo mætti lengi telja.
Engin hugmynd var of stór og gervigreindartól hjálpuðu við að skapa frumgerðir sem sýndar voru í lok dags. Veitt voru verðlaun í þremur flokkum: besta lausnin, praktískasta lausnin og villtasta lausnin og mátti hver þátttakandi gefa eitt stig í hverjum flokki.
“Það var alveg magnað að sjá allar hugmyndirnar fæðast og hvað úrlausnirnar voru vel unnar. Kraftur gervigreindarlíkana ásamt ofurkröftum og þekkingu Stafræns Íslands teymisins birtist þarna og ljóst að miklar breytingar eru framundan í okkar starfsemi. Sérhvert verkefni á skilið að verða að fullunninni lausn og við erum þegar byrjuð að finna þessum verkefnum og öðrum sem hagnýta gervigreind enn skýrari farveg hjá okkur” segir Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands.
Verðlaunahafar voru eftirfarandi:
Besta lausnin:
Bjarki, vöru- og verkefnastjóri Ísland.is, fyrir Fyrsta skrefið. Forvirk þjónusta þar sem Ísland.is stígur fyrsta skrefið og fólk fær það sem það á rétt á án þess að þurfa að leita að því.

Praktískasta lausnin:
Ragga, tækni- og þróunarstjóri fyrir Völund. Hugmyndin snýst um forgangsröðun og úthlutun verkefna með sjálfvirkum og rekjanlegum hætti.

Villtasta lausnin:
Hér varð jafntefli og deildu Gummi samskiptastjóri og Vésteinn heildarhönnuður upplýsingatækni verðlaununum.
Gummi var með hugmyndina um Ísland.is á mannamáli þar sem mállíkön voru nýtt til að umorða og stytta texta og gera hann skiljanlegri bæði yngra fólki og þeim sem hafa íslensku ekki að móðurmáli.
Hugmynd Vésteins var spjallmenni sem fylgir fólki í gegnum umsóknir á Ísland.is, sækir upplýsingar með samþykki og gengur frá greiðslu, allt í einu samtali.

