Fara beint í efnið
Stafrænt Ísland Forsíða
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Einfaldari umboðsvirkni á Ísland.is

11. september 2026

Nú er auðveldara að vinna með umboð á Ísland.is og Mínum síðum. Ferlið við að veita umboð og finna umboð hefur verið uppfært og gert aðgengilegra fyrir fjölbreyttan hóp notenda.

Hvað er rafrænt umboð?

Með rafrænu umboði geta einstaklingar skráð sig inn fyrir hönd annarra og þannig haft aðgang að upplýsingum og framkvæmt ýmsar aðgerðir fyrir þeirra hönd. Lesa meira um rafræn umboð Markmiðið með breytingunum er að gera fólki auðveldara að sjá hvaða rafrænu umboð það hefur, finna þau umboð sem það þarf og veita öðrum aðgang að þjónustu fyrir sína hönd.

Um leið hefur þjónustan fengið nýtt heiti og kallast nú Rafræn umboð og er aðgengileg gegnum Mínar síður, en hét áður Aðgangsstýring.

Betra yfirlit yfir þín umboð

Undir Mín umboð hefur yfirlit yfir rafræn umboð verið endurbætt. Þar geta notendur séð umboð sem þeir hafa veitt eða fengið og nálgast svör við algengum spurningum um rafræn umboð og notkun þeirra.

Einfaldara að finna og veita rétt umboð

Ferlið við að veita umboð hefur einnig verið endurbætt. Nú er hægt að veita fleiri en einum aðila sama umboðið í einni aðgerð og umboð eru flokkuð eftir þjónustuflokkum.

Notendur geta jafnframt leitað og síað umboð eftir stofnun og aðstæðum. Það auðveldar fólki að finna þau umboð sem eiga við hverju sinni án þess að þurfa að þekkja heiti einstakra þjónusta eða umboða fyrir fram.

Fleiri umboð valin saman

Ein stærsta breytingin er ný leið til að velja saman umboð sem tengjast ákveðnum aðstæðum eða þjónustu. Notandi getur þannig valið í eins konar „körfu“ fleiri en eitt umboð sem á við og veitt þau saman.

Þetta getur til dæmis átt við þegar einstaklingur þarf að veita öðrum aðila nokkur tengd umboð vegna ákveðinna aðstæðna. Í stað þess að finna og veita hvert umboð fyrir sig verður hægt að velja þau saman og klára veitinguna í einu ferli.

Dæmi um hvernig umboð nýtist einstaklingum:

  • Aðstandandi getur fylgst með Mínum sínum á Ísland.is fyrir foreldri eða ættingja sem á erfitt með aðgengi að stafrænum upplýsingum, til dæmis vegna öldrunar eða veikinda.

  • Einstaklingur sem ekki á rafræn skilríki getur skráð umboðsmann til að sinna málum fyrir sína hönd, til dæmis senda inn umsóknir.

Dæmi um hvernig umboð nýtist rekstraraðilum:

  • Sækja um veðbókarvottorð eða skuldleysisvottorð.

  • Tilkynna um meðeiganda ökutækis eða afskrá ökutæki.

  • Tilkynna um vinnuslys.

  • Vakta stafrænt pósthólf fyrirtækis á Mínum síðum Ísland.is og nálgast fjárhagsupplýsingar sem tengjast hinu opinbera.

Afmarkað hlutverk

Athugið að rafræn umboð í gegnum Ísland.is hafa afmarkað hlutverk og nýtast aðeins hjá þeim opinberu aðilum sem hafa virkjað þau. Þau nýtast því til dæmis ekki:

  • Sem umboð aðstandenda til upplýsingaöflunar og/eða fjárhagslegra aðgerða í bönkum. Bankar eru með eyðublöð fyrir slík umboð.

  • Sem umboð til að sjá um skil skattframtala. Þau þarf að sækja um hjá Skattinum.

  • Sem umboð hjá lífeyrissjóðum. Lífeyrissjóðir eru með eyðublöð fyrir slík umboð.

  • Sem umboð til að sækja lyf. Slíkt umboð er hægt að stilla í gegnum Heilsuveru.

Breytingarnar eru liður í áframhaldandi þróun rafrænna umboða á Ísland.is, með það að markmiði að gera þjónustuna einfaldari og aðgengilegri fyrir notendur.

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.