Boðun fyrir dóm birt í Stafræna pósthólfinu
8. nóvember 2024
Í síðustu viku var fyrsta rafræna ákæran gefin út vegna umferðarlagabrota og í framhaldi var fyrsta rafræna fyrirkallið birt í Stafræna pósthólfinu.
Í síðustu viku var fyrsta rafræna ákæran gefin út vegna umferðarlagabrota og í framhaldi var fyrsta rafræna fyrirkallið birt í Stafræna pósthólfi Ísland.is.
Ákærur og birtingar vegna umferðarlagabrota birtast nú í Stafrænu pósthólfi einstaklinga á Ísland.is þar sem hægt er að staðfesta móttöku á gögnunum. Í þeim tilfellum sem það tekst ekki hefur lögregla nú samhliða tekið upp snjallforrit til þess að birta einstaklingum ákærur í persónu. Sömuleiðis geta einstaklingar fylgst með dómsmálum sínum á Mínum síðum Ísland.is undir nýjum flokki sem ber heitið Lög og regla.
Þessi framþróun varð möguleg vegna breytingar á lögum um meðferð sakamála sem samþykkt var í sumar.
Til þessa hafa ákærur ásamt skjalaskrám verið fluttar á pappír milli einstaklinga og stofnana. Markmiðið með þessari vegferð er að hætta að flytja fólk og pappír og gera gögn frekar aðgengileg með rafrænum hætti þegar þeirra er þörf. Það leiðir til lægri málskostnaðar, styttri málsmeðferðartíma, minna kolefnisspors og aukins gagnsæis fyrir alla aðila máls.
Unnið er að því að færa allar ákærur yfir á rafrænt form en ekki aðeins vegna umferðarlagabrota. Dómsmálaráðneytið leiddi verkefnið í nánu samstarfi við Stafrænt Ísland.
Frá og með áramótum þá verða allir opinberir aðilar byrjaðir að birta mikilvæg gögn einstaklinga og fyrirtækja í Stafræna pósthólfinu. Stafræna pósthólfið er að finna á Mínum síðum Ísland.is og í Ísland.is appinu.
Stafræna pósthólfið ásamt Mínum síðum Ísland.is eru í sífelldri þróun með það að markmiði einfalda líf fólks og bæta aðgengi að mikilvægum og ganglegum upplýsingum sem er að finna hjá hinu opinbera.