Bjarki Óskarsson til liðs við Stafrænt Ísland
27. ágúst 2026
Bjarki Óskarsson er nýr liðsmaður Stafræns Íslands en hann hefur hafið störf sem vöru- og verkefnastjóri. Hann segist spenntur að kynnast fólkinu og starfseminni betur, vinna með öflugu fólki að áframhaldandi þróun Ísland.is.

Sem vöru- og verkefnastjóri mun hann vinna að áframhaldandi þróun og umbótum á Ísland.is, með sérstaka áherslu á vefinn, þarfir notenda og hvernig við getum gert stafræna þjónustu hins opinbera enn betri og aðgengilegri. Einnig mun hann taka að sér verkefnastýringu við innleiðingu nýrra stofnana á Ísland.is og fleira.
Áður starfaði Bjarki hjá Advania sem vöru- og verkefnastjóri en þar leiddi hann fjölbreytt verkefni á sviði vef- og appþróunar. Hann hefur einnig unnið hjá Controlant, Icelandair og Tempo og kemur því með dýrmæta reynslu úr vöruþróun, verkefnastýringu og stafrænni þjónustu. Bjarki er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík.
Utan vinnu hefur Bjarki mikinn áhuga á öllu tengdu tölvum og tækni ásamt því að vera á hreyfingu, en hann stundar til dæmis hjólreiðar, fótbolta og padel af kappi ásamt útivist.
Bjarki er mjög liðtækur á dansgólfinu en hann æfði breikdans sem krakki og getur enn tekið hið víðfræga „headspin“ spor.
