Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Stafrænt Ísland Forsíða
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

1.000.000 afgreiddar umsóknir

14. október 2025

Nú hafa yfir milljón stafrænar umsóknir verið afgreiddar innan Umsóknakerfis Ísland.is.

Áfangi þessi náðist í september þegar rúmlega 52.500 umsóknir fóru í gegnum kerfið – frá alls 153 opinberum aðilum sem innleitt hafa kerfið til þess að einfalda sína ferla og auka yfirsýn.  
 
Umsóknakerfið leysir af hólmi ótal handtök starfsmanna sem áður þurftu að sýsla með gögn í mismunandi kerfum og jafnvel handskrá upplýsingar á mörgum stöðum til þess að hægt væri að veita viðkomandi þjónustu.  
 
Líklegt má telja að milljónasta umsóknin hafi verið um Evrópska sjúkratryggingakortið hjá Sjúkratryggingum sem jafnan er sú þjónusta sem flestir nýta sér umsóknakerfinu í hverjum mánuði.  

 Vinsælustu umsóknirnar í september 

  1. Umsókn um Evrópska sjúkratryggingakortið 

  2. Tilkynning um eigendaskipti að ökutæki 

  3. Umsókn um vegabréf 

  4. Umsókn um sakavottorð 

  5. Umsókn um framhaldsskóla 

  6. Umsókn um ökuskírteini 

  7. Umsókn um fæðingarorlof 

  8. Umsókn um að gerast leiðbeinandi í æfingaakstri 

  9. Umsókn um fjárhagsaðstoð sveitarfélag 

  10. Umsókn um skilavottorð  
     

Sem stendur eru um 340 umsóknaferli aðgengileg á Ísland.is en þeim fjölgar í ört. Dæmi um gerðir umsókna sem búið er að útfæra í Umsóknarkerfinu eru afgreiðsla vottorða, leyfisbeiðnir, breytingar á skráningu, greiðsla fyrir ýmiskonar þjónustu og umsóknir um styrki.  
 
Sjá nánari upplýsingar um Umsóknarkerfi Ísland.is.   

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.