16. desember 2025
Uppbygging ferðaþjónustu og frístundahúsa að Laxárbakka í Eyja- og Miklaholtshreppi

Laxárbakki Resort ehf. hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu og frístundahúsa að Laxárbakka í Eyja- og Miklaholtshreppi.
Matsáætlunin er aðgengileg á Skipulagsgátt
Allir geta kynnt sér matsáætlunina og veitt umsögn í gegnum Skipulagsgáttina eigi síðar en 14. janúar 2026.
