16. febrúar 2026
Stækkun Sigöldustöðvar um allt að 65 MW - viðbótarskýrsla
Landsvirkjun hefur lagt fram til kynningar og samráðs viðbót við fyrri umhverfismatsskýrslu vegna stækkunar Sigölduvirkjunar. Í skýrslunni er fjallað um áhrif framkvæmdarinnar á vatnshlot.
Fyrirtækið er með áform um að stækka Sigöldustöð, sem er efst þeirra vatnsaflsstöðva sem nýta vatn af vatnasviði Tugnaár og Þjórsár. Í dag er virkjað rennsli 240 m3/s og uppsett afl Sigöldustöðvar með þremur aflvélum 150 MW. Fyrirhuguð áform ganga út á að bæta við fjórðu aflvélinni og auka með því afls stöðvarinnar í allt að 215 MW.
Fyrirhuguð stækkun á Sigöldustöð undirgekkst umhverfismat sem lauk með áliti Skipulagsstofnunar 18. desember 2023. Ásahreppur veitti framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni 19. febrúar 2025 sem síðar var fellt úr gildi með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 57/2025. Samkvæmt úrskurðinum var annmarki á umhverfismati framkvæmdarinnar hvað varðar mat og kynningu á áhrifum á vatnshlot. Viðbótarskýrlunni og samráði um hana er ætlað að bæta úr framangreindum annmarka.
Viðbótarskýrslan er aðgengileg á Skipulagsgátt
Allir geta kynnt sér viðbótarskýrsluna og veitt umsögn í gegnum Skipulagsgáttina eigi síðar en 30. mars 2026.
