20. nóvember 2025
Landeldi í Hvalfirði
Umhverfismat framkvæmda

Aurora fiskeldi hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu vegna umhverfismats fyrir landeldi í Hvalfirði, Hvalfjarðarsveit.
Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg á Skipulagsgátt.
Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn í gegnum Skipulagsgáttina eigi síðar en 2. janúar 2026.
