31. október 2024
Ferðaþjónusta við Holtsós undir Eyjafjöllum
Steinar Resort ehf. hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats fyrir ferðaþjónustu við Holtsós undir Eyjafjöllum, Rangárþingi eystra.
Matsáætlunin er aðgengileg á Skipulagsgátt.
Allir geta kynnt sér matsáætlunina og veitt umsögn í gegnum Skipulagsgáttina eigi síðar en 29. nóvember 2024.
