Starf sviðsstjóra stefnumótunar og miðlunar
27. janúar 2026
Skipulagsstofnun óskar eftir að ráða sviðsstjóra stefnumótunar og miðlunar.

Skipulagsstofnun óskar eftir að ráða sviðsstjóra stefnumótunar og miðlunar.
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt verkefni, hafa áræði og þekkingu til að leiða verkefni og getu til að leysa verk á eigin spýtur og í samstarfi við aðra. Sviðsstjóri heyrir undir forstjóra stofnunarinnar.
Helstu verkefni
Forysta og dagleg stjórnun sviðsins.
Vinna að gerð og framfylgd landsskipulagsstefnu, strandsvæðisskipulags og raflínuskipulags.
Þátttaka í stefnumótun og áætlanagerð stofnunarinnar.
Viðburðahald og útgáfa á vegum stofnunarinnar.
Umsjón með undirbúningi og útgáfu leiðbeininga á vegum Skipulagsstofnunar.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi, svo sem á sviði skipulagsfræði, arkitektúrs eða hliðstæðum greinum.
Þekking og reynsla af skipulagsmálum.
Leiðtogahæfileikar, færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
Frumkvæði, skapandi hugsun og metnaður.
Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum.
Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
Gott vald á íslensku í ræðu og riti og góð enskukunnátta.
Umsóknir
Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarfrestur um starfið er til og með 9. febrúar 2026
Umsóknarform má nálgast á vef Vinnvinn:
Sviðsstjóri stefnumótunar og miðlunar
Umsjón með ráðningarferlinu hafa Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) og Garðar Óli Ágústsson (gardar@vinnvinn.is).
