Starf sérfræðings á skipulagssviði
27. janúar 2026
Skipulagsstofnun óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa

Skipulagsstofnun óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa við fjölbreytt verkefni í skipulagsmálum með áherslu á aðal- og deiliskipulags.
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt viðfangsefni og getu til að leysa verkefni bæði sjálfstætt og í samvinnu við aðra. Um 100% starf er að ræða.
Helstu verkefni
Ráðgjöf og leiðbeiningar um skipulagsgerð sveitarfélaga, sérstaklega varðandi gerð og afgreiðslu aðal- og deiliskipulags.
Ýmis verkefni við miðlun, leiðbeiningar og kynningarmál um skipulagsmál.
Þátttaka í vinnu við þróun leiðbeininga, laga og reglugerða á sviði skipulagsmála.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi, svo sem á sviði skipulagsfræði eða arkitektúrs.
Þekking eða reynsla sem nýtist í starfi er æskileg.
Þekking á opinberri stjórnsýslu á sviði skipulagsmála.
Færni í notkun landfræðilegra upplýsingakerfa.
Hæfni til að hagnýta þekkingu og reynslu í ólíkum verkefnum.
Frumkvæði, skapandi hugsun og metnaður til að ná árangri.
Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum.
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Umsóknir
Umsóknarfrestur um starfið er til og með 9. febrúar 2026
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarform má nálgast á vef Vinnvinn:
Umsjón með ráðningarferlinu hafa Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) og Garðar Óli Ágústsson (gardar@vinnvinn.is).
