Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna iðnaðarsvæðis að Meitlum og Hverahlíð II
11. mars 2025


Skipulagsstofnun staðfesti, 11. mars 2025, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036 sem samþykkt var í bæjarstjórn 30. janúar 2025.
Í breytingunni felst að skilgreina á tvískipt iðnaðarsvæði I24 fyrir rannsóknarboranir og orkuvinnslu. Óbyggt svæði ÓB1 minnkar sem því nemur. Markmið rannsóknarborana er að kortleggja jarðhitaauðlindir utan núverandi vinnslusvæða.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.