Staðfesting á breytingu á fyrrum aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna Efra-Haganess I og Brautarholts-Mýri
10. október 2025
Skipulagsstofnun staðfesti, 10. október 2025, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. febrúar 2025.
Í breytingunni felst að tvö ný verslunar- og þjónustusvæði eru skilgreind, Efra-Haganes I (lóð 3) á reit VÞ-12 og Brautarholt-Mýri á reit VÞ-13. Leyfilegt byggingarmagn á VÞ-12 er 220 m2 á 0,8 ha svæði og á VÞ-13 er leyfilegt að byggja 340 m2 á 1,2 ha svæði. Að öðru leyti gildi ákvæði um verslunar- og þjónustusvæði í gildandi aðalskipulagi.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
