Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Vestmannaeyja vegna gosminnisvarða og stígakerfis
30. júní 2025

Skipulagsstofnun staðfesti 30. júní 2025 breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. maí 2025.
Í breytingunni felst að reistur verður gosminnisvarði á óbyggðu svæði ÓB-3. Þá verður ný gönguleið mótuð upp á Eldfell með útsýnisstöðum og tengingu við hringstíg sem fyrir er.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.