Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Stykkishólms við Kallhamar og Hamraenda vegna græns iðngarðs

30. janúar 2026

Skipulagsstofnun staðfesti 30. janúar 2026 breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólms 2002-2022 sem samþykkt var í bæjarstjórn 11. desember 2025.

Í breytingunni felst stefna um uppbyggingu græns iðngarðs. Stækka á núverandi athafnasvæði A1, A3 og A4 við Hamraenda og Kallhamar en óbyggð svæði og landbúnaðarsvæði minnka sem því nemur. Út frá A3 er gert ráð fyrir nýju hafnarsvæði H3 ásamt því að flugbraut verður stytt og hindrunarflötur hennar minnkaður.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram