Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna efnistöku- og efnislosunarsvæði E-401 á Sauðárkróki
20. október 2025

Skipulagsstofnun staðfesti 20. október 2025 veruleg) breytingu Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. febrúar 2025.
Í breytingunni felst breytt afmörkun efnistöku- og efnislosunarsvæðis E-401. Svæðinu er skipt upp í þrjú svæði, 3 ha verður skilgreint sem opið svæði OP-405, 4,5 ha fær nýtt landnotkunarnúmer (E-404) þar sem gert er ráð fyrir efnislosun og 5,9 ha verður áfram skilgreint sem E-401 þar sem gert er ráð fyrir efnistöku, 26.000 m3. Afmörkun iðnaðarsvæðis I-405 minnkar úr 1,2 ha í 0,9 ha.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
