Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna nýtingarhlutfalls/byggingarmagns á athafna-, iðnaðar- og hafnarsvæðum.
8. desember 2025

Skipulagsstofnun staðfesti, 8. desember 2025, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036 sem samþykkt var í sveitarstjórn 17. júlí 2025.
Í breytingunni felst að almennir skilmálar um byggingarmagn og hámarksnýtingarhlutfall á athafna-, iðnaðar- og hafnarsvæðum eru uppfærðir og heimildir hækkaðar á öllum þessum svæðum.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
