Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps vegna athafnasvæðis á Svalbarðseyri
7. júlí 2025
Skipulagsstofnun staðfesti 1. júlí 2025, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn þann 25. febrúar 2025.
Í breytingunni felst stækkun athafnasvæðis AT2 úr 1 ha í 1,2 ha og hækkun nýtingarhlutfalls úr 0,4-0,7 í 0,4-0,9. Við það fellur út iðnaðarsvæði I4.
Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
