Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Suðurnesjabæjar vegna aukningar á byggingarmagni á verslunar- og þjónustusvæði að Gauksstöðum (VÞ6), Suðurnesjabæ.
26. nóvember 2024
Skipulagsstofnun staðfesti 26. nóvember 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034 sem samþykkt var í bæjarstjórn 2. október 2024.
Í breytingunni felst að hámarksstærð smáhýsa verður 47m2 í stað 30m2 áður og við það eykst hámarksbyggingarmagn á reit VÞ6 að Gauksstöðum úr 800 m2 í allt að 1050 m2.
Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.