Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skorradalshrepps vegna stefnumörkunar bátalægja við Skorradalsvatn
14. nóvember 2024
Skipulagsstofnun staðfesti, 14. nóvember 2024, breytingu á Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022 sem samþykkt var í hreppsnefnd 22. október 2024.
Í breytingunni felst að marka stefnu um bátaskýli og bátaaðstöðu við Skorradalsvatn.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.