Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna frístundabyggðar að Reykjum
2. febrúar 2026

Skipulagsstofnun staðfesti, 2. febrúar 2026, breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 1. október 2025.
Í breytingunni felst skilgreining á um 5 ha frístundabyggð F48 í landi Reykja fyrir fjórar frístundalóðir. Skógræktar- og landgræðslusvæði SL4 minnkar sem því nemur.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
