Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna breytinga á almennum ákvæðum um nýtingarhlutfall á landbúnaðarlóðum
28. maí 2025

Skipulagsstofnun staðfesti 27. maí 2025 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 2. apríl 2025.
Í breytingunni felst að nýtingarhlutfall á landbúnaðarlóðum sem eru 3 ha eða minni hækkar úr 0,03 í 0,05.
Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.