Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar vegna fjölgunar íbúða á miðsvæði M9 Vatnsnesi

10. júní 2025

Skipulagsstofnun staðfesti, 10. júní 2025, breytingu á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035 sem samþykkt var í bæjarstjórn 21. janúar 2025.

Í breytingunni felst fjölgun íbúða úr 600 í 1250 á miðsvæði M9 á Vatnsnesi og byggingarmagn eykst úr 33.000 í 185.000 m2. Byggingar verða á 3 -5 hæðum með möguleikum á fjölgun hæða við ströndina upp í allt að 7 hæðir.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­ar­túni 7b

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram