Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skipulagsstofnun Forsíða
Skipulagsstofnun Forsíða

Skipulagsstofnun

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna Vaðfitjanámu, nýs efnistökusvæðis

9. febrúar 2026

Skipulagsstofnun staðfesti, 9. febrúar 2026, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 10. desember 2025.

Í breytingunni felst nýtt 11 ha efnistökusvæði E125 með áætlaðri efnistöku allt að 80.000 m3. Samhliða minnkar iðnaðarsvæði I25 og nafni þess er breytt í Vaðölduver í stað Búrfellslundar en þar eru auk þess heimiluð lagning vinnuvega innan svæðis.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsstofnun

Hafa samband

Sími 595 4100
skipulag@skipulag.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-15.
Föstudaga kl. 9-13.

Borg­artún 21

105 Reykjavík
Kennitala: 590269 - 5149

Samfé­lags­miðlar

Facebook
Instagram