Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna nýs verslunar- og þjónustusvæðis í Hallstúni
15. janúar 2026

Skipulagsstofnun staðfesti, 15. janúar 2026, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. maí 2025.
Í breytingartillögunni felst skilgreining á um 2,8 hektara verslunar - og þjónustusvæði (VÞ42). Heimilt verður að byggja upp ferðaþjónustu í gestahúsum, fyrir allt að 20 gesti og vera með fasta búsetu. Heildarbyggingarmagn er allt að 550 m2. Landbúnaðarsvæði minnkar sem þessu nemur.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
