Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Norðurþings vegna Stórhóls – Hjarðarholts á Húsavík
22. janúar 2026

Skipulagsstofnun staðfesti, 22. janúar 2026, breytingu á Aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. desember 2025.
Í breytingunni felst að þétta á byggðina og fjölga íbúðum á ÍB8, ÍB9 og ÍB10 um allt að 80. Skilgreindar eru nýjar lóðir fyrir allt að 60 íbúðir í fjölbýlishúsum, raðhúsum og einbýlishúsum auk þess sem fjölga má skráðum íbúðum í þegar byggðum húsum um allt að 20 íbúðir, þannig að einbýlishús geti breyst í tvíbýlishús.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
