Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps vegna verslunar- og þjónustusvæðis VÞ5
17. desember 2025

Skipulagsstofnun staðfesti 17. desember 2025, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033, sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. október 2025
Í breytingunni felst breyting á skipulagsákvæðum reits VÞ5 Klettsvegur 1, þar sem hámarkshæð er hækkuð úr 9 m í 10 m.
Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
